Klukkan 09.10 miðvikudaginn 17. september 2003 sprakk sprengja í svartri Toyota Corolla-bifreið sem var nýfarin út af bifreiðastæði við Amtssjúkrahúsið í Glostrup. Bifreiðin var komin út á gtuna sem liggur frá bifreiðastæðinu þegar sprengjan sprakk.
Ökumaður bifreiðarinnar var Mickey Larsen sem var 32 ára og fyrrum Bandidosmeðlimur og lést hann samstundis.
Sprengingin var svo flug að bifreiðin hentist um 20 metra í loft upp og brak úr henni ásamt líkamsprtum dreifðist yfir mjg stórt svæði. Strax eftir sprenginguna kviknaði eldur í bifreiðinni og allt brann sem brunnið gat.